Grallaramót Sundfélags ÍBV
 
           2. – 3. apríl nk.

 

 

 

 

Keppt verður í Sundhöll Vestmannaeyja sem er 25 metra innilaug með 4 brautum.

Mótið er einstaklingskeppni þar sem einstaklingar fæddir 1996 og yngri geta keppt.

Það eru engin tímalágmörk á mótið, en við áskiljum okkur þó rétt til þess að takmarka fjölda riðla eftir skráningu, gerist þess þörf. Í boðsundum má sundmaður keppa upp fyrir sig. Veitt verða verðlaun aldursflokkunum 11-12 ára og 13 ára og eldri. Allir keppendur 10 ára og yngri fá þátttökuverðlaun. Veitt verða verðlaun fyrir sigur í riðli.

 

Dagskrá mótsins:

Keppt verður í þremur hlutum á þessum tveimur dögum, tveimur á laugardegi og einum á sunnudegi. Sjá greinaröðun hér

 

Skráningar:

Skráningarfrestur fyrir þá sem skila skráningum á Hy-tek formi er mánudaginn 28. mars en annars er fresturinn til föstudagsins 25.mars. Móttaka allra skráninga verður staðfest með tölvupósti. Keppendalisti verður sendur á félögin til yfirferðar. Frestur til að leiðrétta augljósar villur er til og með 30. mars. Endanlegur keppendalisti verður svo birtur á síðu félagsins 30. mars (http://sund.ibv.is/forsida/). Skráningar sendist á grallaramot@gmail.com

Skráningagjaldið er kr. 350 fyrir einstaklingsgrein og kr. 700 fyrir boðsund. Skráningargjöldin reiknast út frá þeim fjölda sem eftir stendur þegar þjálfarar eru búnir að fara yfir og listinn er kominn á heimasíðuna.

Greiða þarf skráningargjöld inn á reikning félagsins eigi síðar en fimmtudaginn 31. mars 2011

 

Reikningur: 1167-26-1213      Kt: 701092-2369

.

 

Gisting og fæði:

Boðið verður upp á gistingu í Hamarsskóla sem er stutt frá Sundlauginni. Allur matur verður framreiddur þar. Gistingu og fæði þarf að panta um leið og skráningar eru sendar á netfangið grallaramot@gmail.com þar sem fram kemur:

§  Nafn félags.

§  Þjálfari, sími og netfang.

§  Tengiliður, sími og netfang.

§  Fjöldi einstaklinga í fæði og gistingu.

Ef einhverjir óska eftir að kaupa stakar máltíðir er verðið 500 kr. fyrir morgunmat, 1500 kr. fyrir hádegismat og 1500 kr. fyrir kvöldmat.

 

Verð á gisti- og fæðispakka er 8.000 kr. og greiðist inn á reikning: 1167-26-1213     

Kt: 701092-2369 eigi síðar en 28. mars.

 

Innifalið í verðinu er:

Kvöldhressing – föstudagskvöld (samloka, ávextir og heitt kakó).

Morgunmatur - laugardag og sunnudag.

Hádegismatur - laugardag og sunnudag.

Kvöldmatur - laugardag.

Gisting í 2 nætur.

Kvöldvaka á laugardagskvöldi (ef einhverjir hafa skemmtiatriði sem þeir vilja koma á framfæri þá er það sjálfsagt  J )

 

Séu sérstakar óskir um mataræði vegna fæðuóþols skal tilkynna það um leið og gisting er pöntuð.

 

Herjólfur:

Eftirfarandi siglingaáætlun gildir alla daga vikunnar:

Landeyjahöfn:

Frá Vestmannaeyjum

07:30

10:30

15:00 

19:00 

Frá Landeyjahöfn:

09:00 

12:30 

16:30 

20:30 

Þorlákshöfn:

Frá Vestmannaeyjum

07:30 

15:00 

 

 

Frá Þorlákshöfn:

11:15 

19:00 

 

 

 

 

ATH! að frítt er fyrir börn yngri en 12 ára í Herjólf.

Hikið ekki við að hafa samband ef ykkur vantar frekari upplýsingar.

Nánari upplýsingar veita:

Anna Lilja Sigurðardóttir í síma 867-3965 eða annals@grv.is 

Arnheiður Pálsdóttir í síma 698-3453 eða eirikuradda@simnet.is

Einnig grallaramot@gmail.com

 

 

                                       Bestu kveðjur,

 f.h. Stjórnar Sundfélags ÍBV

 

Anna Lilja Sigurðardóttir formaður

Arnheiður Pálsdóttir gjaldkeri