30. december 2011
GAMLÁRSHLAUP/GANGA!
GAMLÁRSHLAUP/GANGA
Til styrktar Krabbavörn Vestmannaeyja
- laugardaginn 31. desember, gamlársdag, kl. 11:00.
Hægt verður að hlaupa/ganga frá tveimur stöðum, annars vegar frá Stórhöfða og hins vegar frá Steinstöðum. Mæting er á báðum stöðum kl. 10:45, hlaupið/gangan hefst svo kl. 11:00 stundvíslega.
Farið verður sem leið luggur niður Höfðaveg, Illugagötu og Hlíðarveg þar sem beygt verður austur og farið eftir Strandveginum og endað á Vinaminni Kaffihúsi, þar sem boðið verður upp á heita súpu og brauð.
Þátttökugjald er kr. 1.500, og rennur það óskipt til Krabbavarnar Vestmannaeyja.
Til baka