11. december 2011

Jólasundmót, föstudaginn 16. desember 2011


Sæl öll.

Næsta föstudag, þann 16. desember verður jólasundmót hjá okkur. Mæting í laugina er 16:30 hjá krökkunum. 

Þáttökugjald er 500 krónur.

Til þess að svona viðburður verði að veruleika vantar okkur aðstoð við mótið:
• setja upp laugina á föstudeginum, mæting 15:45
• tímavörslu á mótinu
• dómara (æfa sig þeir sem fóru á námskeið)
• ræsir
Endilega bjóðið ykkur fram því að alltaf er gott að hafa nóg af starfsmönnum svo að mótið gangi vel fyrir sig.

Þeir sem ætla að taka þátt eru beðnir um að senda mér póst á kth44@hi.is

Þið fáið síðan ítarlegri póst um mótið um helgina.

Kveðja, Karitas (8474149) og stjórnin.

P.s. Ef þið vitið af einhverjum sem ekki hafa fengið póst eða eru ekki inn á póstlistanum okkar að látið þá vita af mótinu svo að enginn gleymist.

Til baka